Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lífríki Vífilsstaðavatns

08.10.2024
Lífríki VífilsstaðavatnsÞriðjudaginn 1. október fóru nemendur 7. bekkja skólans í vettvangsferð að Vífilsstaðavatni. Það er orðinn fastur liður á hverju hausti að nemendur heimsæki Vífilsstaðavatn og fræðist um lífríkið og náttúruna þar.
Ferðin hófst á því að nemendur ásamt kennurum hjóluðu að vatninu. Þar tók Bjarni Jónsson fiskifræðingur á móti hópnum. Nemendur unnu verkefni undir dyggri leiðsögn Bjarna og kennara. Nemendur skoðuðu umhverfið, rifjuðu upp örnefni, hjálpuðu Bjarna við að ná fiskum úr neti og skoðuðu þá. Jafnframt voru tekin sýni úr læknum og vatninu til að rannsaka nánar í skólanum.
Daginn eftir var svo unnið við að greina sýnin í víðsjá með viðeigandi greiningarlyklum. Nemendur fengu einnig að kryfja fisk úr vatninu og lærðu í leiðinni um líffæri fiska. Vinnan var afar skemmtileg og lærdómsrík að mati nemenda.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband