Nemandi úr Hofsstaðaskóla sigrar í danskeppni SAMFÉS
09.03.2025

Keppt var í einstaklings- og hópakeppni í tveimur aldursflokkum: 10-12 ára og 13 ára og eldri.
Þátttakendur frá félagsmiðstöðvum víðs vegar af landinu mættu í Garðaskóla á föstudaginn og alls tóku yfir 30 hópar og einstaklingar þátt í keppninni frá yfir 20 félagsmiðstöðvum. Garðbæingar unnu einstaklingskeppnina
Ásdís Emma Egilsdóttir úr félagsmiðstöðinni Garðalundi/Hofsstaðaskóla var hlutskörpust í ein-staklingskeppni 10-12 ára en í hópakeppni 10-12 ára var danshópurinn Martröð úr félags¬miðstöðinni Hólmaseli í Breiðholti hlutskarpastur. Hópinn skipuðu þær Saga, Karítas Hanna, Andrea Ylfa, Anna Marín og Una Rakel.
Alexandra Vilborg Thompson úr félagsmiðstöðinni Urra í Urriðaholti vann þá í einstaklingskeppni 13 ára og eldri en danshópurinn Groovy Gyals úr félagsmiðstöðinni Arnardal á Akranesi vann hópakeppni aldursflokksins. Hópinn skipuðu þær Tinna Björg, Ísabel Bergljót, Monika Margrét, Ariana Selma, Hólmfríður Katrín, Ynja og Katla.
Mikil stemning ríkti á viðburðinum og greinilegt var að þátttakendur höfðu lagt mikla vinnu í atriðin sín.