Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólaslit í Hofsstaðaskóla 2025

01.06.2025
Skólaslit í Hofsstaðaskóla 2025

Mynd 1, Mynd

Skólaslit verða í Hofsstaðaskóla föstudaginn 6. júní. Nemendur mæta í samveru á sal og fara síðan í bekkjarstofur með umsjónarkennurum. Forráðafólk er velkom með á skólaslitin.

Kl. 9.00 1. og 2. bekkur

Kl. 10.00     3. og 4. bekkur

Kl. 11.00     5. og 6. bekkur

Kl. 12.00     7. bekkur

Hentugt er að koma gangandi í skólann þennan dag ef kostur er eða nota bílastæðin við FG þar sem er nóg pláss. 

Minnum á að fara vel yfir heima hvort þar séu bækur af bókasafni skólans eða námsbækur og koma með þær í skólann. Enn vantar mikið af bókum!

Ítrekum mikilvægi þess að láta vita ef breytingar verða á skólavist nemenda næsta skólaár.

Skólastarf hefst að nýju með skólasetningu föstudaginn 22. ágúst. Skóladagatal næsta árs er að finna hér á vefsíðu skólans undir Skólinn/Skóladagatal. 

Starfsfólk og stjórnendur Hofsstaðaskóla þakka fyrir samstarfið á skólaárinu sem er að líða og senda bestu kveðjur um ánægjulegt sumarleyfi.

Til baka
English
Hafðu samband