Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Munum eftir skutlvösunum

16.08.2025
Munum eftir skutlvösunumSkutlvösum er ætlað að draga úr umferðarálagi við skólana og bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.
Nú styttist í skólabyrjun og af því tilefni minnum við foreldra, forráðafólk og öll þau sem eru að skutla börnum í skólann að nota skutlvasana svokölluðu.
Skutlvasar eru á þremur stöðum í Garðabæ; við Hofsstaðaskóla, Álftanesskóla og Flataskóla. Þeim er ætlað að draga úr umferðarálagi við skólana og bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.
Á meðfylgjandi mynd má sjá skutlvasann á Bæjarbraut, göngustígur liggur frá honum að Hofsstaðaskóla.
Til baka
English
Hafðu samband