Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann

01.09.2025
Göngum í skólannHofsstaðaskóli hefur ákveðið að taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Embætti landlæknis, Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Samgöngustofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla. Göngum í skólann verður sett miðvikudaginn 3. september og lýkur formlega miðvikudaginn 1. október.

Þetta er í nítjánda sinn sem verkefnið er haldið hér á landi og hefur þátttaka aukist jafnt og þétt. Megin markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar, að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið er. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.¬gongum¬iskolann.is

Hofsstaðaskóli hefur áður tekið þátt í Göngum í skólann þar sem unnið hefur verið með ýmsa þætti er tengjast umhverfi, umferð og hreyfingu og hefur árangur okkar verið mjög góður. Allir eru mjög jákvæðir og áhugasamir að taka þátt í verkefninu og standa sig fyrir hönd skólans okkar

Göngum í skólann í okkar skóla
Skólinn hefur nú þegar verið skráður til leiks og við hvetjum alla til þess að taka þátt. Við hvetjum ykkur kæra forráðafólk til þess að nýta ykkur verkefnið og þá umræðu sem skapast þennan mánuðinn til þess að ræða þessi mál við börnin ykkar og fara öruggustu leiðina í skólann með yngstu börnunum. Mesta umferðaröryggið er fólgið í því að það sé sem minnst bílaumferð við skólann og í íbúahverfunum.

Vonandi gengur þetta vel hjá okkur. Verum endilega opin fyrir þessu og jákvæð og nýtum haustið til að vekja athygli á hreyfingu og öryggi barnanna okkar á leiðinni í skólann.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband