Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bangsadagur

27.10.2008
Bangsadagur

Ákveðið var að halda bangsadag á bókasafni skólans miðvikudaginn 22. október en alþjóðlegur bangsadagurinn er 27. október.

Nemendur í 1. og 2. bekk komu með bangsa í skólann í tilefni dagsins og nemendur í 1. bekk heimsóttu bókasafnið þar sem þeim var kynnt saga dagsins og lesin fyrir þá bangsasaga.

Síðan 1998 hafa bókasöfn á Norðurlöndum haldið Bangsadaginn hátíðlegan. Það er einkar viðeigandi að tengja bangsa og bókasöfn á þennan hátt því bangsar eru söguhetjur margra vinsælla barnabóka. Dagurinn sem bangsavinir hafa valið sér er 27. október, afmælisdagur Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Roosevelt var mikill skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á bjarnarveiðum hafi hann vorkennt litlum, varnarlausum bjarnarhúni og sleppt honum lausum. Washington Post birti skopmynd af þessu atviki sem vakti mikla athygli.

Til baka
English
Hafðu samband