Gegn einelti í Garðabæ
,,Gegn einelti í Garðabæ" er aðgerðaáætlun grunnskóla Garðabæjar sem hófst haustið 2003. Markmið hennar er að fyrirbyggja og bregðast við einelti ásamt því að bæta líðan og öryggi nemenda. Verkefnið grundvallast á markmiðum í skólastefnu Garðabæjar.
Megin áherslur aðgerðaráætlunarinnar eru að:
• Efla vitund og færni allra starfsmanna, forráðamanna og nemenda til að vinna að forvörnum og bregðast við einelti.
• Móta skýr viðbrögð og feril við meðferð eineltismála.
• Koma á markvissu forvarnastarfi í öllum árgöngum.
• Auka fræðslu, upplýsingar og samstarf við forráðamenn.
• Kanna umfang og eðli eineltismála hjá nemendum í grunnskólum Garðabæjar.
Til að kanna umfang og eðli eineltismála hjá nemendum í Flataskóla, Garðaskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla verður rafrænn spurningalisti lagður fyrir nemendur í 4. – 10. bekk í nóvember/desember 2009. Nemendur svara könnuninni á skólatíma. Spurt verður um líðan nemenda, reynslu þeirra af einelti og viðbrögð ef þeir sjálfir og/eða aðrir eru lagðir í einelti.
Eineltisteymi skólanna vinnur úr könnuninni og verða niðurstöður kynntar á heimasíðu hvers skóla fyrir sig.
Skólastjórnendur