Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vímuvarnarhlaup Lions

11.05.2010
Vímuvarnarhlaup Lions

Þriðjudaginn 11. maí stóð Lionklúbburinn Eik fyrir árlegu vímuvarnarhlaupi í 5. bekkjum. Tilgangurinn með hlaupinu er að vekja börnin til umhugsunar og gera þau ábyrg og meðvituð um ábyrgð á eigin lífi og velferð. Til að undirstrika boðskapinn hafa Lionskonur tekið með sér góðar fyrirmyndir sem ávarpa krakkana á undan hlaupinu. Að þessu sinni var það hún Fanney fyrrverandi nemandi Hofsstaðaskóla sem er mikil handboltastjarna og þátttakandi í ungfrú Ísland sem spjallaði við krakkana. Fanney ítrekaði fyrir þeim að hugsa vel um sig sjálf og lagði áherslu á hollt og gott mataræði.

Að því loknu var haldið út á völl þar sem boðhlaupið fór fram. Þar öttu kappi 5. A.M.H. og 5. B.V. Að þessu sinni var það lið 5. B.V. sem hafði sigur.

Krakkarnir stóðu sig mjög vel og höfðu Lions konur á orði að þau hefðu verið sérstaklega kurteis og sýnt íþróttamannslega framkomu.

Kíkið á myndir frá fræðslunni og hlaupinu

Til baka
English
Hafðu samband