Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hofsstaðaskóli fékk gull þriðja árið í röð

13.09.2011
Hofsstaðaskóli fékk gull þriðja árið í röð

Hofsstaðaskóli fékk gullverðlaun fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda í ár, þegar verðlaun voru veitt í lokahófi keppninnar sunnudaginn 11. september sl. Þetta er þriðja árið í röð sem skólinn fær gullverðlaunin og hlaut hann því farandbikarinn til eignar. Sædís Arndal smíðakennari í Hofsstaðaskóla á veg og vanda af þátttöku nemenda skólans í keppninni.
Þetta er í 20. sinn sem keppnin er haldin. Lokaathöfnin fór fram í höfuðstöðvum Marel, sem hefur verið bakhjarl keppninnar frá upphafi. Alls bárust 1.872 hugmyndir í keppnina í ár frá 46 grunnskólum víða um land. Þetta er í 20. sinn sem keppnin er haldin. Tólf nemendur hlutu viðurkenningar og verðlaun fyrir sínar hugmyndir, þar af 10 stúlkur. Í ár átti Hofsstaðaskóli þrjá nemendur í úrslitum. Kristín Hekla Örvarsdóttir hlaut gullverðlaun fyrir öryggisúr og Birgir Guðlaugsson hlaut bronsverðlaun fyrir ljósahanska.
Í ár átti Hofsstaðaskóli þrjá nemendur í úrslitum. Kristín Hekla Örvarsdóttir hlaut gullverðlaun fyrir öryggisúr og Birgir Guðlaugsson hlaut bronsverðlaun fyrir ljósahanska.
Við lokaathöfnina afhentu forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar og Svandís Svavarsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra verðlaun og viðurkenningar til þátttakenda og grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur sjálfir hugmyndir sínar fyrir gestum.
Fyrir lokahófið voru 40 nemendur valdir til að taka þátt í tveggja daga vinnusmiðju, en tilgangur vinnusmiðjunnar er að gefa öllum sem valdir eru, tækifæri til að útfæra hugmyndir sínar nánar og útbúa plakat, líkan eða aðra framsetningu sem lýsir hugmyndinni best. Dómnefnd velur úr hugmyndunum og fá stigahæstu keppendurnir verðlaun. Vinnusmiðjan var haldin í Háskólanum í Reykjavík, en meistaranemar og kennarar úr Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands aðstoðuðu nemendur.
Tilgangur Nýsköpunarkeppninnar er að efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og hvernig megi þroska hana með vinnu við eigin hugmyndir.

Skoða myndir

Til baka
English
Hafðu samband