Dansað fyrir betri heimi
14.02.2014
![Dansað fyrir betri heimi Dansað fyrir betri heimi](/library/Myndir/2013-2014/Allir-argangar-2013-2014/Dansad-fyrir-rettlaeti-eldri-deild/IMG_2799.jpg?proc=ContentImage)
Nemendur og starfsmenn í Hofsstaðaskóla tóku í morgun þátt í viðburði á vegum samtakanna UN WOMEN á Íslandi sem kallaður er „dansað fyrir réttlæti“ .
Vel á þriðja þúsund manns dönsuðu í Hörpu á hádegi, en þar sem við áttum ekki heimangengt þá dönsuðum við á okkar forsendum, enda klukkan ekki 12:00 á hádegi á sama tíma á jörðinni.Kristbjörg Ágústsdóttir zumbakennari stýrði dansinum, en allir viðstaddir tóku þátt af lífi og sál. Þetta var góður endir á síðasta skóladegi fyrir vetrarleyfi.
Markmiðið er að sýna samstöðu og vekja athygli á því að ein af hverjum þremur konum verða fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Í ár er dansað af krafti fyrir allar þær konur og stúlkur sem upplifað hafa ofbeldi og sýna í verki að okkur stendur ekki á sama. Dönsum af gleði og krafti fyrir mannréttindum kvenna, fyrir heimili þar sem konur og stúlkur þurfa ekki að líða ofbeldi vegna kyns sín.
Sjá myndir frá atburðinum á myndasíðu skólans