Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skíðaferð 7. bekkja

12.03.2014
Skíðaferð 7. bekkja

Miðvikudaginn 12. mars var farið í Bláfjöll á skíði með nemendur í 7. bekkjum skólans .Veðrið var milt og gott, hiti við frostmark en smá ofankoma annað slagið. Nemendur og starfsfólk naut útiverunnar í fersku fjallalofti. Sumir skíðuðu, einhverjir voru á brettum eða sleðum og einhverjir kusu að ganga um svæðið eða jafnvel sátu í skálanum og saumuðu út. Ferðin gekk mjög vel, allir kátir og glaðir og komu heilir heim.

Sjá myndir á myndasíðu 7. bekkja

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband