Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

2. bekkur á Úlfarsfelli

18.09.2015
2. bekkur á Úlfarsfelli

Nemendur 2. bekkja fóru í fjallgöngu á Úlfarsfell. Í árganginum er verið að vinna verkefnið Komdu og skoðaðu fjöllin og var farið í gönguna í tengslum við það. Lagt var að af stað í mildu en nokkuð blautu veðri en svo stytti upp um leið og lagt var á fjallið. Gangan var á köflum nokkuð erfið en allir komu sælir og þreyttir aftur til baka. Á myndasíðu árgangsins má sjá nokkrar myndir úr þessari skemmtilegu ferð

Til baka
English
Hafðu samband