Lestrarátak Ævars vísindamanns
12.01.2016
Hvetjum alla nemendur til lesturs.Þann 1. janúar hófst lestrarátak Ævars vísindamanns. Átakið stendur til 1. mars 2016 og er fyrir alla krakka í 1.-7. bekk.
Lestrarátakið virkar þannig að fyrir hverjar þrjár bækur sem nemendur í 1. - 7. bekk lesa fylla þau út miða sem þau sækja í gegnum www.visindamadur.is eða á bóksafn skólans. Foreldri eða kennari kvitta á hvern miða og svo verður miðinn settur í kassann góða sem staðsettur er á bókasafni skólans.
Í lok átaksins verða miðarnir sendir til Heimilis og skóla, en starfsfólkið þar munu sjá um að taka við þeim. Því fleiri bækur sem börnin lesa því fleiri miða eiga þau í pottinum. Það skiptir engu máli hvort bókin sem er lesin sé löng eða stutt, teiknimyndasaga, myndasögusyrpa eða skáldsaga - bara svo lengi sem börnin lesa.
Sömuleiðis skiptir tungumálið sem bókin er á ekki máli. Bækurnar mega vera á íslensku, dönsku, frönsku, pólsku, japönsku, ensku osfrv. - bara svo lengi sem börnin lesa.
Í lok átaksins dregur Ævar út nöfn fimm barna og fá þau í verðlaun að verða persónur í nýrri ævintýrabók sem hann er að skrifa (Bernskubrek Ævars vísindamanns 2: Árás vélmennakennaranna) sem kemur út með vorinu hjá Forlaginu - svo það er til mikils að vinna.
Þetta lestrarátak er gert af bókaormi, til að reyna að búa til nýja bókaorma - en það er dýrategund sem má alls ekki deyja út.