Reiðhjól og góðar fyrirmyndir
29.03.2017

Við hvetjum ykkur til að nýta góða veðrið og ganga eða hjóla í skólann með börnunum ykkar svo fækka megi bílum sem aka að skólanum á morgnana. Að vera börnum sínum góð fyrirmynd í umferðinni er öflugasta fræðslan ásamt því að kenna þeim um lög og reglur sem eru í gildi.
Núna fara fleiri nemendur að koma á reiðhjólum í skólann. Gæta þarf að því að öryggisbúnaður þeirra sé í lagi sem og notkun reiðhjólahjálma. Á þessari síðu er hægt að skoða fræðslumyndbönd um hjólreiðar http://www.samgongustofa.is/umferd/fraedsla-og-oryggi/fraedsla/reidhjol/ og í bæklingnum Reiðhjól og hjálmar er. hægt að fræðast um atriði sem hafa ber í huga varðandi hjólreiðahjálma
Á náms- og fræðsluvefnum www.umferd.is er svæði ætlað foreldrum/forráðamönnum. Hugmyndin er að leita eftir samstarfi við foreldra um leiðir sem þeir telja að komi sér vel í umferðarfræðslunni. Við þiggjum með þökkum allar hugmyndir og ábendingar frá ykkur. Hægt er að senda þær á netfangið hildur.karen.adalsteinsdottir@grundaskoli.is eða hafa samband við Hildi Karen í síma 8675602.
Athygli er vakin á að:
• samkvæmt 40. gr. umferðarlaga mega börn yngri en 7 ára ekki vera hjólandi í umferðinni nema í fylgd með 15 ára og eldri.
• eigi má reiða farþega á reiðhjóli eða rafvespu. Þó má vanur reiðhjólamaður sem náð hefur 15 ára aldri reiða barn yngra en 7 ára en ber þó að nota viðeigandi öryggissæti og búnað.
• best er að nota hjálm, það er eina vitið. Börnum yngri en 15 ára er skylt að nota reiðhjólahjálma og viðeigandi hlífðarbúnað þegar þau ferðast um á reiðhjólum, rafvespum, hjólabrettum og línuskautum.
Með hjólakveðju