Öryggismyndavélar í og við Hofsstaðaskóla í Garðabæ
13.01.2020

Myndefni verður einungis skoðað ef upp koma atvik er varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Heimild til skoðunar er aðgangsstýrð og verður eingöngu skoðuð af þeim sem til þess hafa heimild og rík trúnaðarskylda gildir um störf þeirra. Er myndefni er vistað að hámarki í 90 daga og því er eytt að þeim tíma loknum.
Vöktunin er fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og eru merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun eru uppsettar á hinum vöktuðu svæðum. Sjá nánar á: http://hofsstadaskoli.is/skolinn/oryggisaaetlun/oryggismyndavelar/.
Til kynningar og nánari fræðslu varðandi eftirlitið sem hér um ræðir skal bent á reglur Garðabæjar um rafræna vöktun öryggismyndavéla sem taka til þessarar vöktunar:
https://www.gardabaer.is/media/reglugerdir/Reglur-Gardabaejar-um-rafraena-voktun-oryggismyndavela-05.03.2019.pdf.
Einnig er bent á að almennar upplýsingar um rafræna vöktun, ásamt leiðbeiningum er að finna í bæklingi á vef persónuverndar:
https://www.personuvernd.is/media/leidbeiningar-personuverndar/Eftirlit-eda-njosnir-rafraen-voktun.pdf