Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólahátíð stóru upplestrarkeppninnar

16.03.2021
Skólahátíð stóru upplestrarkeppninnarSkólahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram á sal skólans við hátíðlega athöfn mánudaginn 15. mars. Þar kepptu átta nemendur í 7. bekk um að taka þátt fyrir hönd Hofsstaðaskóla í Héraðshátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin verður fimmtudaginn 25. mars nk. í Kirkjulundi, félagsheimili Vídalínskirkju.

Nemendur lásu svipmyndir úr skáldsögunni Stormsker eftir Birki Blæ Ingólfsson og ljóð eftir Jón Jónsson úr Vör. Einnig lásu nemendur ljóð að eigin vali. Júlía Sæunn Einarsdóttir kynnti höfund texta og Ólafur Trausti Ólafsson höfund ljóða. Í hléi fluttu þau Garðar Þorri Friðbjarnarson og Kristín Hong tónlistaratriði.

Allir sem tóku þátt í keppninni stóðu sig einstaklega vel og fengu að gjöf frá skólanum, rós og ljóðabókina Óðhallaringla eftir Þórarin Eldjárn. Þriggja manna dómnefnd, sem skipuð var Hafdísi Báru Kristmundsdóttur skólastjóra, Kristínu Thorarensen bókasafnskennara og Kristrúnu Sigurðardóttur fyrrverandi deildarstjóra Hofsstaðaskóla, valdi tvo fulltrúa skólans og einn til vara til að taka þátt í Héraðshátíð Stóru upplestarkeppninnar. Eftirfarandi keppendur urðu fyrir valinu: Emilía Geirsdóttir og Lovísa Anna Jóhannsdóttir sem aðalmenn og Kristín Sif Gísladóttir sem varamaður, við óskum þeim alls hins besta í Héraðshátíðinni. Þökkum öllum þeim sem tóku þátt í skólakeppninni, þar sem allir lögðu mikið á sig við undirbúning og æfingar undanfarnar vikur. Hér er hægt að skoða myndir frá hátíðinni
Til baka
English
Hafðu samband