Frekari lokanir í Flataskóla og Hofsstaðaskóla
Verkfræðistofan Mannvit hefur unnið að heildarúttektum á skólahúsnæði Hofsstaðaskóla og Flataskóla vegna rakaskemmda. Fyrstu niðurstöður sýnatöku bárust 23. janúar og hefur Garðabær gripið til þess ráðs að loka rýmum i báðum skólum í kjölfarið. Kennsla mun raskast í skólunum vegna þessa næstu tvo daga fyrir ákveðnar bekkjardeildir.
Hofsstaðaskóli: Um er að ræða bekkjarstofur, tölvustofu og bókageymslu.
Bæjaryfirvöld og skólastjórar leggja áherslu á að grípa til aðgerða strax til að tryggja öryggi starfsfólks og nemenda. Forráðamenn og starfsfólk skólanna fengu sendan upplýsingapóst í kvöld vegna málsins. Bæjaryfirvöld bíða nánari upplýsinga úr sýnatökum. Þegar hafa verið tekin tæplega 100 efnissýni og DNA/ryksýni í Flataskóla og rúmlega fimmtíu í Hofsstaðaskóla.
Í desember þurfti einnig að grípa til lokanna kennslurýma í báðum skólum og er nú unnið að endurbótum og nánara framkvæmdaplani fyrir skólana.
Næstu skref samkvæmt verklagi Garðabæjar:
- Stofunum sem um ræðir verður lokað með loftþéttri lokun á meðan viðgerðir standa yfir.
- Beðið er eftir endanlegum niðurstöðum sýnatöku og þá verður hægt að leggja heildarmat á ástand bygginga og í kjölfarið ráðast í endurbætur þar sem þörf er á. Ef til þess kemur verður afmörkuðum svæðum lokað með loftþéttri lokun á meðan viðgerðir standa yfir.
- Víðtækar hreingerningar verða framkvæmdar strax eftir lagfæringar ásamt hreinsun loftræstikerfis.
- Að lokum mun Mannvit sjá um eftirfylgni en sýnataka fer aftur fram 2-3 mánuðum eftir að viðgerðum er lokið.
Nánar um verklagið hér
Vakin er athygli á að á næstunni má búast við að gera þurfi breytingar á tilhögun kennslu vegna tilfærslna á bekkjarstofum eða öðru starfi og verður upplýst um það sérstaklega af skólastjórnendum.
Starfsfólk og forráðamenn fá senda reglulega upplýsingapósta um stöðu mála og allar upplýsingar um framvindu viðgerða verða birtar á vefsíðu Garðabæjar.