Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Alþjóðlegur dagur læsis 8. september

08.09.2024
Alþjóðlegur dagur læsis 8. september

Undirstaða góðs lesskilnings er góður málþroski og góð lesfimi. Ástæða er til að hafa áhyggjur af dvínandi lesskilningi barna á Íslandi en það þýðir hins vegar lítið að velta sé upp úr áhyggjum án athafna. Nærtækara er að bretta upp ermar og kenna börnum að velta fyrir sér og ígrunda texta ásamt því að læra aðferðir sem hjálpa þeim að ná tökum á nýjum, framandi orðum. Gagnvirkur lestur er mikið rannsökuð og gagnleg aðferð í glímunni við texta. Við höfum tekið saman einfalda útfærslu sem foreldrar og börn geta tileinkað sér. Það getur tekið nokkur skipti að ná tökum á aðferðinni en hún mun skila barninu betri vinnubrögðum við lestur og þar af leiðandi betri lesskilningi. Þessi aðferð er gagnleg fyrir alla nemendur sem eru búnir að ná nokkuð góðum tökum á lestri og geta einbeitt sér að innihaldi texta sem hæfir aldri og þroska. Gagnvirkur lestur Stuðningur við heimalestur Mikilvægi þess að lesa fyrir börn

Í tilefni af alþjóðlegum degi læsis, þann 8. september, hefur Félag læsisfræðinga á Íslandi (FLÍS) sent upplýsingar til leik- og grunnskóla varðandi hvernig aðstoða má foreldra við að efla læsi barna sinna.
Grunnskólar fengu send tvenns konar upplýsingablöð til að deila með foreldrum en heimalestrarþjálfun í grunnskóla er eitthvað sem nær hvert einasta heimili í landinu hefur reynslu af. Mikilvægt er að skólar styðji við heimilin svo að sá tími sem varið er í heimalestur nýtist vel og hann sé ánægjulegur bæði fyrir barnið og þann sem þjálfar lesturinn. Við höfum tekið saman nokkrar aðferðir, fyrir yngstu börnin og foreldra þeirra, sem hægt er að nota til að gera heimalesturinn bæði fjölbreyttan og áhugaverðan en aðferðunum fylgja myndbönd og annað efni af netinu sem geta leiðbeint foreldrum hvernig best er að bera sig að.

Leikskólar fengu sendar upplýsingar, til að deila með foreldrum, um gildi þess að lesa fyrir börn frá unga aldri þar sem grunnur að góðum málþroska og læsi er lagður strax á fyrstu æviárum barnsins. Þar má einnig finna hugmyndir að því hvernig gera má lestrarstundirnar að gæðastundum. Að lesa fyrir börn eflir ekki aðeins málþroska og stuðlar að betri lesskilningi seinna meir, heldur ýta lestrarstundir undir tengslamyndun, þær örva ímyndunaraflið og bæta einbeitingu og athygli svo dæmi séu tekin.

Gleðilegan dag læsis!

Höfundur er formaður FLÍS.

Til baka
English
Hafðu samband